28.11.05

Himnesk kjötsúpa

Ég eldaði dásamlega kjötsúpu áðan, hún er yfirleitt alltaf góð hjá mér en hún var betri en venjulega núna. Það voru ekki til rófur í Hagkaup svo ég keypti broccoli og blómkál í staðinn og svo bætti ég púrrulauk við þetta vanalega og útkoman var frábær! Ég eldaði svo mikið að ég get borðað hana í hádeginu og kvöldmatinn á morgun og svo aftur í hádeginu á miðvikudaginn, nammi namm.

Ég fór í vinnuna í dag í fyrsta skipti eftir að ég fékk flensuna og það var yndislegt. Ég varð reyndar ansi þreytt þegar leið á daginn og ætlaði snemma heim en endaði á því að vera alveg til 6!

1 Comments:

Blogger farfuglinn said...

Þú hefur hér með verið kitluð.

6:48 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home