jólin
Ég er búin að ákveða að taka jólin í sátt í ár. Fór í geymsluna hjá mér og fann fullt af gömlu jólaskrauti. Ég er búin að setja upp kransinn minn góða sem er alltaf tilbúinn fyrir jólinn og bíður bara eftir að vera hengdur upp. Ég keypti hann fyrir nokkrum árum þegar ég bjó á Stokkseyri, maður sem ég kannaðist við var að selja kransa fyrir SÁÁ og ég gat ekki sagt nei! Ég bæti alltaf á kransinn á hverju ári og hann er orðinn ansi hlaðinn. Ég er líka búin að setja upp seríur, aðventuljós og allskonar jólaskraut, jóladúka og styttur. Það er virkilega jólalegt og kósý hjá mér núna. Ég verð bara að reyna að viðhalda jólastemningunni fram yfir jól. Ég fann líka útiseríur sem ég á frá fyrra lífi, ætla að banka upp hjá nágrönnunum fljótlega og vita hvort þeir eru ekki til í að skella þeim upp með mér.
Gríma er komin heim, hún var í heimsókn hjá kærastanum sínum, Seljen. Ég vona bara að það hafi eitthvað gerst, hún var mjög viljug en hann var eitthvað tregari. Sennilega vegna þess að hann hafði verið að þjónusta tvær aðrar áður en hún komst að.

1 Comments:
Er sjálf að reyna að komast í jólastuð. Fór og verslaði jóladúka og styttur í gær. Ætlaði svo að reyna að hengja upp jólaseríu en Leó misskildi þetta eitthvað og hélt að ég væri að reyna að leika við sig hahaha. Ég er ekki beint sú þolinmóðasta þannig að ég gafst upp og ætla að skjótast á eftir og kaupa stjörnu eða eitthvað hahaha. En já það væri frábært ef þú getur passað Leó fyrir okkur :O) og getur það svona lengi. Hann yrði líklega að koma til þín þann 19. des og vera til 28-29. des. Er það okei?
Sendu inn athugasemd
<< Home