það sem er framundan
Dagurinn byrjaði ekki vel hjá mér. Ég ætlaði í leikfimi en leið hræðilega illa þegar ég vaknaði, var illt í hálsinum og með höfuðverk og almennan slappleika. Ég fór samt í sturtu og dröslaðist í vinnuna en sleppti leikfiminni. Það rætist samt ágætlega úr deginum og ég var orðin þokkaleg um hádegi.
Ég kom seint heim úr vinnunni eins og vanalega en kom við í Fiskbúðinni Hafberg á leiðinni heim og keypti mér dýrindis lax og kartöflur sem ég skellti í ofninn í smá stund. Mæli með þessari fiksbúð.
Það er ansi margt framundan hjá mér og hlakka ég mikið til. Um helgina er ég að fara á djammið með kattarvinkonum mínum :D og veit ég að það verður gífurlegt stuð og mikið hlegið. Við ætlum að borða góðan mat, syngja og skemmta okkur svo er aldrei að vita hvernig þetta endar !!!!
Daginn eftir er afmælisveisla hjá Karítas systurdóttur minni og fer ég þangað með Kötu. Eins gott að ég verði ekki mjög þunn ;).Svo á ég sjálf afmæli á mánudaginn, verð alltof gömul en það þýðir ekkert að spá í það, tíminn líður.
Helgina eftir er aftur djamm helgi hjá mér, þá fer ég með fólki úr skólanum mínum á stofnþing á Selfossi. Sem sagt nóg framundan og ég sem hélt þetta yrði svo rólegt hjá mér í nóvember!

2 Comments:
Sæl og óska ykkur góðrar skemmtunar!Hér fylgir svo fyrirfram afmæliskveðja.Kíki örugglega við í fiskbúðinni!kv.Sperran
Takk fyrir kveðjuna :), fiskbúðin er bara frábær!
Sendu inn athugasemd
<< Home