veikindi
Ég er einmitt búin að vera að hugsa um það upp á síðkastið að ég sé bara hætt að verða veik! En þá gerðist það auðvitað ég varð veik. Vaknaði mánudagsmorguninn og leið vægast sagt illa, með hita, beinverki og hræðilegan höfuðverk. Þannig að ég er búin að vera veik heima núna í 3 daga, hræðilega leiðinlegt.
Í gær var amma jörðuð og ég tók fullt af verkjatöflum og var viðstödd. Athöfnin var mjög falleg og passaði ömmu vel, Diddú söng einsöng og það var svo fallegt.
Pabbi, Arthur og Ronja komu til landsins og það var gaman að hitta þau, Ronja greyið var rosalega þreytt enda þvældust þau út um allt. Núna eru allir farnir, Kata systir er í Florida þannig að ég er ein eftir!
Ég ætla í vinnu á morgun sama hvernig mér líður, ég bara get ekki verið heima einn dag í viðbót. Gríma er byrjuð að breima aftur, ég verð að drífa mig með hana til Seljens helst á morgun eða á föstudaginn. Breimandi læður eru ekki sérstaklega skemmtilegar!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home