verkefni, stuð og afmæli
Helgin hefur verið mjög viðburðarrík og ég er hrædd um að ég verði ansi þreytt í vinnunni á morgun.
Ég var að læra allan laugardaginn með Eygló og við náðum að klára verkefnið sem við áttum að gera og skella því í póst. Þetta verkefni er búið að hvíla á okkur eins og mara og var ég farin að halda að ég myndi hreinlega ekki getað klárað, en þetta tókst!Kraftaverk enn gerast!
Um kvöldið fór ég síðan í frábært partý með kattarvinkonum mínum heima hjá Vilmu. Hún eldaði lasagna sem var algjör snilld og ég sá um eftirréttinn. Við drukkum ansi ótæpilega af rauðvíni, hlógum mikið og hátt eins og alltaf þegar við hittumst og svo sungum við líka! Þessi vinkonu hópur á svo sannarlega eftir að lengja líf mitt! Mér finnst svo gaman að syngja í Singstar þó svo að ég syngi ekkert sérlega vel, en það er aukaatriði. Við Vilma vorum duglegar við að syngja og skiptumst á að vinna þó held ég að hún hafi unnið aðeins oftar. Síðan skelltum við okkur á Players og dönsuðum eins og vitleysingar fram á rauða nótt!!
Ég vaknaði í morgun skelþunn en dröslaðist þó með Kötu í afmælisveislu á Hvolsvelli. Karítas frænka mín er 12 ára í dag og var haldið upp á það. Þar fékk ég fullt af góðu að borða og skemmti mér vel þrátt fyrir að líðanin væri ekkert sérlega góð.
Á morgun á ég svo afmæli, ég er nú þegar búin að fá eitthvað af gjöfum, Ásdís gaf mér rosalega flott rauðvíns/vatns glas. Gunnhildur og fjölskylda gáfu mér rúm fyrir kisurnar og ofboðslega fallegan dúk sem passar á borðstofuborðið mitt.

1 Comments:
Hæ hæ
Til hamingju með afmælið :O)
kv.Leó!!
Sendu inn athugasemd
<< Home