14.12.05

hitt og þetta

Jæja ætli ég verði ekki að blogga fyrir hana systur mína :) svo hún hafi eitthvað að gera þegar hún er heima í tölvunni. Hún er frelsuð, er komin með Hive! Annars skora ég bara á hana að fara að blogga sjálf!!

Það er allt ágætt að frétta hjá mér, á mánudaginn skilaði ég ritgerð þannig að nú er ég komin í frí frá náminu í bili :) það er aldeilis léttir! Nú get ég verið í tölvunni, horft á sjónvarpið og lesið eins og mig lystir án þess að fá samviskubit, það er mikið góð tilfinning.

Annars er fullt að gera í félagslífinu hjá mér þessa dagana og ég á eftir að kaupa flest allar jólagjafirnar þannig að ég sé sæng mína útbreidda. Í skólanum er verið að æfa helgileikinn á fullu og gengur það svona upp og ofan!

Ég er búin að finna mér kettling sem mig langar í og er að hugsa um að fá mér. Hún heitir Shia-Ming og hana er að finna á þessari síðu http://web.telia.com/~u31607297/myweb9/index.htm eða þá að ég athugi með eina af systrum hennar. Mér finnst þetta voðalega spennandi og líf mitt snýst eiginlega bara um ketti þessa dagana!!! Ég er mjög ánægð með það áhugamál, það hæfir mér vel þótt fullt af fólki finnist ég stór skrítin!!

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili, ég var að elda mér dýrindis kjúklingarétt sem ég ætla að borða og svo ætla ég að skella mér í sund :).

2 Comments:

Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Ji hvað kettlingarnir eru sætir hehe. Leó og Emilía biðja heilsa og vonandi hefur þú gaman að myndunum :O)

5:03 PM  
Blogger farfuglinn said...

Sætar kisur. Ef ég væri ekki með ofnæmi.... ;)

6:53 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home