22.12.05

Leó Gullbráarson

Ég er að passa Leó son Gullbráar, hann er alveg að verða 4 mánaða. Hann er svo mikil dúlla ég held ég komi ekki til með að vilja skila honum aftur. Honum finnst gott að kúra, hann skreið upp í rúm hjá mér í morgun og lá í hálsakotinu á mér og malaði og við áttum yndislega stund saman. Núna situr hann út í glugga og horfir út.´
Ég var alveg hissa hvað dömurnar tóku honum vel, hann virtist þekkja mömmu sína aftur og nuddaði sér þvílíkt upp við hana þegar hann sá hana fyrst, við Guðbjörg fengum báðar tár í augun. Grímu passaði hann sig aftur á móti á, enda urrar hún lágt ef hann kemur of nálægt henni. Mamma hans er mjög upptekin af honum en slær til hans loppunni ef hann er of nærgöngull.
Ég fór á skógarkattakvöld hjá Vilmu í gær, við skoðuðum myndir úr Svíþjóðarferðinni okkar, það var alveg frábært að rifja hana upp. Þetta var svo skemmtileg ferð.
Margrét Birna kom og skutlaði mér til Vilmu, hún fórnaði höndum yfir því hvað Gullbrá og Gríma væru orðnar feitar hjá mér, ég held ég verði að kaupa light fóður handa þeim í dag.

2 Comments:

Anonymous Sperran said...

Óska þér gleðilegra jóla og gæfuríks árs.Hafðu það sem allra best yfir hátíðirnar.Kv. Sperran

12:23 PM  
Blogger Kolla said...

Gleðileg jól Hrund og takk fyrir tímann á Spáni í sumar :)

10:22 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home