Bon-bon
Vá það er meira en hálfur mánuður síðan ég bloggaði síðast. Spurning um að ég taki mig á, það er ekki eins og ég sé ekki í tölvunni á hverjum degi. Reyndar gerist ekki neitt stórkostlegt í lífi mínu.
Ég fer í vinnuna, síðan er ég í framhaldsnáminu. Er reyndar í tveimur áföngum núna Stofnanakenningar heitir annar þeirra en hinn Ráðgjöf og samvinna. Báðir mjög áhugaverðir áfangar en með vinnu held ég að þetta verði dálítið strembið. Ég verð að taka mig á og vera rosalega dugleg að læra.
Ég er loksins búin að finna mér kettling sem ég ætla að flytja inn, búin að taka ákvörðunina, var að hugsa um systur hennar en hætti síðan við. Kisan mín heitir Sheci-Bon og er kölluð Bon-bon.
Hér er mynd af henni.

3 Comments:
Je minn eini þvílíkt beutí :D
Æ, þvílíkt sæt. Bon Bon... ætli kisan borði bara danskt BonBon nammi!!
Já, taka sig á og gangi þér vel í náminu!Kisan er krúttleg mjög!kv.Sperran
Sendu inn athugasemd
<< Home