1.1.06

England

Ætli það sé ekki kominn tími til að blogga, svona í fyrsta skiptið á þessu ári. Ég er stödd í Englandi þessa stundina, nánar tiltekið í Midhurst sem er um klukkustund frá London. Fór 28. des. með Kötu og Gunna að heimsækja pabba og Jackie. Það er búið að vera heilmikið fjör hjá okkur, fórum m.a. á hverfispöbbina þar sem ég vann Jökul í tvö skipti af þremur í pílukasti, var sérlega ánægð með það. Annars er búið að vera ósköp notalegt hjá okkur, ég fór á nokkrar útsölur, er búin að lesa mikið og borða góðan mat og drekka fullt af rauðvíni, er hrædd um að ég sé búin með skammtinn fyrir þetta árið.

Gamlárskvöld borðuðum við önd, ég horfði á skaupið í tölvunni og við vorum með brennu í grenjandi rigningu! Ég saknaði þess að það voru ekki neinir flugeldar en Gunni og pabbi voru aðeins of seinir til að kaupa þá. Á morgun fer ég síðan heim og get ekki neitað því að það verður notalegt að koma heim. Verst er að ég þarf að fara að vinna strax daginn eftir!

1 Comments:

Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Gleðilegt nýtt ár!! Velkomin heim og takk kærlega fyrir pössunina :D

Kv. Guðbjörg, Ívar og Leó

7:48 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home