1.2.06

bara hitt og þetta

Jæja Kata systir minnir mig á það enn og aftur að ég á þetta blogg. Það er alltof mikið að gera hjá mér þessa dagana til að ég sé dugleg að blogga. Og á námið mitt þar stóran þátt, hinn þátturinn er kettirnir. Ég er í framboði sem ritari hjá Kynjaköttum, er orðinn hluti af skemmtinefnd og er aðstoðarvefstjóri bæði hjá Kynjaköttum og Skógarköttum.
Í gærkvöldi fór ég í bíó, sá myndina Pride and prejudice, mæli eindregið með henni, fannst hún mjög fyndin og skemmtileg. Ég fer alltof sjaldan í bíó, held ég verði að fara að læra að fara ein í bíó, bara hef mig ekki í það.
Ég er alvarlega að íhuga að gerast meðlimur í Vinstri grænum, mér finnst þeir vera þeir einu sem hafa virkilega áhuga á að vernda náttúruna hér á Íslandi. Þarf að kynna mér stefnuskrá þeirra áður en ég tek þessa stóru ákvörðun, ég hef fram að þessu verið frekar ópólitísk.

2 Comments:

Blogger Kolla said...

Í hvaða framhaldsnámi ertu?

9:28 AM  
Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Líst vel á vinstri-græna :D Þú ert velkomin híhíhí. Sendi þér myndir af Leó vonandi í kvöld :)

5:10 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home