28.2.06

dagurinn í dag o.fl.

Það er allt ágætt að frétta á þessum bænum. Ég er búin að fara á árshátíð og skemmti mér konunglega og varð frekar þunn daginn eftir.

Í dag skilaði ég einu verkefni og skila öðru mjög fljótlega. Í dag var staðbundin lota í Ráðgjöf og samvinna, það var alveg ágætt. Í hádeginu fór ég í Maður lifandi, mér finnst svo gott að borða þar og geri það við hvert tækifæri sem ég fæ. Í dag var einhver baunaréttur með grænmeti, nammi namm. Annars gengur mér ekki alveg nógu vel með mataræðið þessa dagana. Ég er aðeins í mjólkurvörum sem fara hræðilega illa í mig!! Þessar mjólkurvörur eru rjómi sem er í bollum sem ég á erfitt með að standast!! Sem betur fer er sá tími að líða hjá.

Næsta mánudag ætla ég ásamt tveimur vinnufélugum á átaksnámskeið hjá World class, ég hef ekki verið alveg nógu dugleg að fara í ræktina upp á síðkastið og ætla að taka mig á. Ég hef farið svona 1 - 2 sinnum í viku sem er ekki nóg.

Annars er ansi margt framundan hjá mér í tengslum við kettina. Þarnæstu helgi er sýning hjá Kynjaköttum og ætla ég að mæta með Gullbrá, Gríma verður heima í óléttu. Í tengslum við sýninguna eru fullt af fundum framundan.

1 Comments:

Blogger Sperran said...

Hætt að blogga? kv.sperran.P.S.hvernig gekk sýninginn?

12:45 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home