skóli og árshátíð
Síðustu tvo daga hefur verið staðbundin lota í náminu hjá mér í Stofnanakenningum, þetta var virkilega skemmtileg lota sem skildi heilmikið eftir sig. Það hefur verið ansi mikið að gera hjá mér upp á síðkastið og verður næstu tvær vikurnar. Ég þarf að skila tveimur verkefnum núna strax eftir helgi og er með dálítið í maganum yfir því en auðvitað klára ég þetta eins og vanalega.
Það er árshátíð framundan hjá vinnunni, ég átti ekki nein föt svo ég skellti mér í Kringluna síðustu helgi og verslaði mér föt. Ég fór ein og fór í 3 fatabúðir, keypti mér svart pils í einni og topp í annarri. Ég rölti síðan í nokkrar skóbúðir en sá ekki neitt fyrr en í síðustu búðinni, þar sá ég háhælaða svarta skó sem mér leist vel á. Ég mátaði þá í minni stærð og þeir pössuðu og voru þægilegir svo ég keypti þá. Ég held ég hafi aldrei áður verið svona fljót að kaupa mér spariföt!
Gríma er kettlingafull, það er verulega gaman að fylgjast með henni, þegar ég kom heim í dag fannst mér hún vera sverari en hún var þegar ég fór í morgun!! Kettlingarnir eiga að fæðast 23. - 26. mars.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home