8.2.06

veikindi

Ég er veik heima, er búin að berjast á móti síðan á sunnudag en þegar ég vaknaði í morgun með hræðilegan höfuðverk, að drepast úr kulda og illt í hálsinum ákvað ég að láta undan og vera heima. En bara í 1 dag!!! Ég neita að vera veik lengur!! Ég ÞOLI ekki að vera veik, ég hata það. Ég var líka að dæla í mig sólhatti og c vítamíni áðan, ekki þar fyrir ég tek vítamín á hverjum degi!
Nú spyr sig ábyggilega einhver, hvers vegna er veik manneskja að blogga kl. 9:00 að morgni til þegar hún ætti að vera sofandi? Það er mjög einföld ástæða fyrir því, það er verið að skipta um glugga í kjallaranum með tilheyrandi látum. Það er ekki fræðilegur möguleiki að ég geti sofið núna. Þeir eru held ég að klára síðasta gluggann núna sem er á sömu hlið og svefnherbergið mitt, vonandi næ ég að sofna á eftir þegar þeir fara á vestur hlið hússins. Ég vel mér alltaf mjög óheppilegan tíma til að verða veik, síðast þegar ég var veik var verið að smíða grindverk rétt við svefnherbergisgluggann minn, enda var ég lengi að jafna mig á þeim veikindum.

4 Comments:

Anonymous Sperran said...

Leitt að heyra með veikindin og að það þurfi að standa yfir framkvæmdir einmitt á meðan!Eigðu góðan bata og farðu vel með þig.kv.

1:06 PM  
Blogger Fröken Ásta said...

Batni þér sem fyrst:)

8:12 PM  
Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Æji, ekki gott Hrund mín :( er einmitt sjálf að skríða upp eftir veikindi. Svo sammála þér, hata að vera lasin en svona er þetta víst bara. Góða bata :)

9:34 PM  
Blogger Hrund said...

Takk fyrir :)
Er orðin miklu betri núna.

7:02 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home