6.4.06

Ekki hætt

Ég var spurð að því í dag hvort ég væri hætt að blogga, ég sé að Sperran spyr að því sama. Nei ég er ekki hætt, sé reyndar að ég hef ekkert bloggað allan mars mánuð. Stundum verður maður bara að taka sér smá pásu.

Það hefur ýmislegt gerst hjá mér þennan mánuð.

Ég fór á kattasýningu með Gullbrá sem var mjög skemmtilegt þótt við fengum ekki nein verðlaun. Þar sem ég´er í stjórn Kynjakatta var ég fram að miðnætti alla daga að vinna að undirbúningi sýningarinnar.

Strax eftir sýningu lagðist ég í flensu sem ég jafnaði mig ekki á fyrr en eftir rúmar tvær vikur. Ég fór of snemma til vinnu, sló niður og lá mun lengur í kjölfarið. Ekki mjög skemmtilegur tími og ég ný byrjuð í átaksnámskeiði!!

Gríma átti að eiga kettlinga 23. - 26. mars. Aðfaranótt sunnudags missti hún vatnið og ég vakti yfir henni mestan hluta nætur en ekkert gerðist. Eftir 12 klukkustundir var ég farin að hafa áhyggjur og hafði samband við dýralækni sem sagði mér að koma með hana. Hún var drifin strax í keisaraskurð, inni í henni var einn kettlingur, dáinn. Hún hafði ekki getað fætt hann því hann var ekki lifandi. Það var því mikil sorg á heimilinu því beðið var eftir litla eða litlu krílunum með mikilli eftirvæntingu.

Núna er allt í rólegheitum hér á heimilinu, ég er að fara í páskafrí og í því ætla ég að skrifa eitt stykki ritgerð og útskrifast síðan úr stjórnun menntastofnana vor. Þá er ég komin með tvær 30 eininga diplómur. Ég er harð ákveðin í því að taka mér frí frá námi eitt ár og einbeita mér að því að njóta lífsins!! Drífa síðan í að klára masterinn.

Jæja ætli þetta dugi ekki í bili :).

2 Comments:

Blogger Sperran said...

Sæl og jú sumir farnir að sakna þín! Leitt að heyra með Grímu.Gangi þér vel annars og hafðu sem best í fríinu.kv.Sperran.

7:24 AM  
Blogger Anna Sigridur said...

Mars hefur greinilega verið þér mega-erfiður. Leiðinlegt að Gríma skyldi missa kettlinginn sinn. Vona að framundan séu bjartir og skemmtilegir tímar. Mundu bara að fara vel með þig!

9:11 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home